Að deila með öðrum, mikið og oft.......
að vita aðeins einn anda
léttar vegna þess að þú lifðir.

Það er velgegni.

Dýpsti leyndardómur lífins er sá að
það eina sem er þess vert að gjöra er það sem við gjörum í þágu annarra.

.... í hinni kærkomnu umhyggju,
í myrkri nætur, í vetrarhríð, á meðal
hinna klæðalausu og útskúfuðu

skaltu leita kærleikans.

Það sem þú átt í vasanum er ekki mikilsvert, eingöngu það sem þú átt í hjarta þínu.

Ef ég get forðað einu hjarta frá því að bresta hef ég ekki lifað til einskis. Ef ég get létt einni mannveru róðurinn, linað þjáningu einnar mannveru eða lyft vanmáttugu þresti upp í hreiður hans hef ég ekki lifað til einskis.

Neyðin á Indlandi er mikil, endalaus viðfangsefni til að vinna að. Ég hef ákveðið að helga allan þann tíma sem ég hef aflögu til að reyna að láta gott af mér leiða á Indlandi.

Ég mun vinna á stað sem heitir Santiniketan, það er 10.000 manna bær
200 km norður af Kalkútta. Kringum bæinn eru níu mjög fátæk þorp, sem þarfnast þess sárlega að því sé hjálpað á einn eða annan hátt. Þar vantar föt, teppi, moskítónet, hreinlætisvörur og ekki síst mat. Ég hef ákveðið að byggja lítið dagheimili í þorpi sem heitir Bauri para (sjá síðu.)

Tinna Brá Baldvinsdóttir og Bent Larsen voru svo væn að bjóðast til að teikna dagheimilið, sem ég vona að sé það fyrsta af mörgum. Sama teikningin mun þó vera notuð þegar ákveðið verður að byggja fleiri heimili.

Ég var fyrir þeirri reynslu að halda á fyrirbura sem fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann, það var lítil stúlka sem var gefið nafnið Iddý. Hún lést nokkrum dögum seinn. Það vantar sárlega hitakassa á spítalann í Santiniketan, og langar mig að afla fjármuna til að kaupa einn. Á meðan ég var úti  í janúar 2006, kom á markaðinn sniðug flík sem heitir kangaroo jacket. http://www.kmcindia.org/healthcare/concept_kmc.html
Það er kallað "skin to skin contact". Móðirin klæðir sig í þennan jakka og hún hefur barnið á milli brjóstanna til að barnið fái hitann, og getur auðveldlega tekið brjóst. Nauðsynlegt er að mæður hafi aðgang að svona jakka þegar farið er heim af spítalanum með fyrirbura, til að auka líkur barnsins að fá að lifa.
Hugmyndin hjá mér er sú að spítalinn í Santiniketan láni mæðrum jakka.

Þetta eru viðfangsefnin sem ég hef áhuga á að vinna að, til að byrja með, maður veit svo aldrei hvað kemur upp á borð til manns seinna.

Það gefur auga leið að ekki get ég fjármagnað þetta ein þótt feginn vildi ég gera það. Þetta er ekki hægt nema með hjálp og velvilja annarra.

Ef þú hefur áhuga að láta gott af þér leiða veit ég að fólkið á Indlandi verði þér eilíflega þakklátt.

Hægt er að lesa bloggin frá ferðunum til Indlands á www.blog.central.is/indlandsfari







"Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá er matföng hefur."
                    
                  Lúkasarguðspjall 3.11.

"Í öllu sýndi ég yður, að með því að vinna þannig ber oss að annast óstyrka og minnast orða Drottins Jesú, að hann sjálfur sagði: "sælla er að gefa en þiggja".
                   
                   Postulasagan 20.35

"Það allt sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér".
                            Matteus 25.40

Sign InView Entries
Ég er að styrkja þorp sem heitir Bauri para, með 110 íbúum. Þetta er mjög fátækt þorp sem lifa einungis á hrísgrjónum, kartöflum og rauðlauk. S.l vetur þurfti að deyða allar hænur í þorpinu út af fuglaflensunni sem kom upp í þorpinu. Nú hefur verið keypt ein hæna og einn hani á hverja fjölskyldu í þorpinu.

Næst þegar ég fer væri gaman að kaupa geitapar á hverja fjölskyldu. Saumavél fyrir þorpið, eða hjól á hvert heimili, þetta eru hugmyndir hvað hægt er að gera á leið til að gera þorpið sjálfbærra, sem ég stefni á að gera.

Nú þegar er verið að borga fyrir skólabíl til að koma krökkunum í skólann í Santiniketan 6 daga vikunnar. Það er borgað fyrir þau matinn sem þau fá í skólanum, og kennararnir fá borguð laun.

Viss peningaupphæð á mánuði fer til að borga lækniskostnað vegna barnanna. Ég er með mjög færan og góðan læknir sem er alltaf tilbúin að bregðast við þegar þarf á honum að halda, hann gefur alla vinnu varðandi læknisþjónustu fyrir þorpið. Hann heitir dr, Gangely.

Borgað er fyrir dagmömmu til að passa litlu börnin í þorpinu, sú dagmamma kemur frá þorpinu. og hefur hún verið þjálfuð vegna þessara starfa. Börnin sem eru of lítil til að fara í skólann fá einnig mat á hverjum degi, og mjólk einu sinni til tvisvar á viku.